Námstækið NotebookLM
Skólastarf á hraða tækninnar, 8. tbl.
NotebookLM er fjölhæft gervigreindartól frá Google, í raun sérsniðið námstæki sem nýtist vel við að greina, útskýra, vinna úr og miðla efni á skapandi og skipulagðan hátt. NotebookLM er viðfangsefni þessa tölublað, enda er hér komið verkfæri sem nýtist kennurum á öllum skólastigum. Það er líka eitt af uppáhalds verkfærunum okkar Hjörvars og skyldi engan furða.
S.Fjalar og Hjörvar Ingi
Námstækið NotebookLM
NotebookLM er verkfæri sem gerir notendum kleift að stofna vinnubækur (e. notebooks) og mata þær á vel völdum heimildum (e. sources). Þegar þetta er skrifað er hámarkið í ókeypis útgáfunni allt að 50 heimildir en 300 ef þú ert með „Plus“ áskrift. Heimild getur verið efni af ýmsum toga, s.s. vísun í vef (Notebook sækir textann en ekki myndir), pdf skjal, textaskjal, Markdown skrá, vísun í skjal eða skjöl á Google Docs (Office skjöl eru ekki studd), vísun í YouTube vídeó og hljóðskrá (Notebook nýtir einungis textana). Einnig er hægt að afrita texta og líma (copy-paste) inn sem heimild.
Þegar heimildirnar eru komnar á sinn stað er hægt að spjalla við þær og vinna með á fjölbreyttan hátt. NotebookLM passar sig á því að fara ekki út fyrir efnið sem þú hefur ákveðið. Þetta minkar t.d. til muna líkur á svokölluðum ofskynjunum (e. hallucinations), þ.e. röngum, uppskálduðum svörum. Notendaviðmótið er mjög aðgengilegt og skiptist í þrjá hluta: heimildir, spjall og stúdío.
Það er einfalt að kalla fram hvers kyns upplýsingar úr heimildunum, finna samhengi og greina mynstur, fá ítarlegar útskýringar á afmörkuðu efni eða gott heildaryfirlit. Kerfið vísar alltaf í heimildir. Í stuttu máli sagt, NotebookLM er hannað til að vera eins og persónulegur aðstoðarmaður sem hjálpar þér að skipuleggja, skilja og vinna úr þínum eigin upplýsingum á skilvirkan og hagnýtan hátt.
NotebookLM er knúið af Gemini 2.5 Flash líkaninu frá Google og skilur efni á 80 tungumálum og skilar efni af sér á yfir 50 tungumálum, þar á meðal íslensku. Tekið skal tekið fram að efni sem NotebookLM skilar af sér er betra á en íslensku, enn sem komið er allavega.
Sérhæfð verkfæri
NotebookLM býr yfir sérhæfðum verkfærum til að vinna með heimildir og miðla efni. Þannig innihalda vinnubækur tæki til að setja saman gagnvirk hugarkort (ekki hægt að flytja þau út), hvers kyns skýrslur, krossapróf, flettispjöld (e. flashcards) og jafnvel heilu vídeó kynningarnar (e. video overview).
Það verkfæri sem mesta athygli hefur vakið og líklegast sá eiginleiki sem kom NotebookLM á kortið eru hlaðvörpin og annað hljóðefni sem kerfið getur unnið. Ég man þegar ég heyrði fyrst hlaðvarpsþátt sem var búinn til af NotebookLM. Ég varð agndofa.
NotebookLM notar ekki gögn sem kerfið hefur verið matað á til eigin þjálfunar og miðlar ekki gögnum til þriðja aðila samkvæmt Google.
S.Fjalar
NotebookLM í námi og kennslu
NotebookLM er eitt af þessum gervigreindarverkfærum sem byggja á stórum tungumálalíkönum, í þessu tilfelli Gemini frá Google. Við Fjalar vörum oft við slíkum lausnum þar sem þær hafa í sumum tilfellum lítið fram yfir grunnlíkanið að bjóða. Það er hins vegar ekki raunin með NotebookLM. Alls ekki!
NotebookLM er byltingarkennt verkfæri fyrir kennara, ekki aðeins vegna þess að þú getur átt samtal við þín eigin gögn heldur vegna þess að þetta tól umbreytir vinnuflæði þínu sem kennari og opnar þér og nemendum þínum nýjar leiðir til miðlunar þekkingar og stuðnings.
Kennarinn sem arkitekt þekkingar
NotebookLM gerir kennurum kleift að skapa sérsniðin og afmörkuð þekkingarsvæði, ef þannig má að orði komast. Með því að hlaða inn kennsluáætlunum, námsefni, glærum, verkefnum, lausnum og fræðigreinum, verður kennarinn arkitekt að upplýsingaheimi nemenda sinna. Gervigreindin sækir þá ekki lengur upplýsingar í óáreiðanlegar og óskilgreindar heimildir á vefnum, heldur vinnur hún eingöngu með þau gögn sem þú sem kennari og sérfræðingur í efninu hefur valið. Þetta skapar öruggt og stýrt lærdómsumhverfi.
Möguleikarnir eru í höndum kennarans
Þegar kennarinn hefur byggt upp góðan grunn af efni opnast ótal möguleikar:
Aðstoðarmaður sem þekkir allt efnið
Þegar gögnin eru komin í vinnubókina getur þú átt samtal við gervigreindina líkt og um væri að ræða aðstoðarmann, sem man hvert einasta smáatriði í námsefninu og kann að miðla því á ótal vegu. Hægt er að biðja um samantektir, útskýringar eða fá svör við sértækum spurningum á augabragði. Fyrir þá sem vilja dýpri innsýn og hugmyndir að fyrirmælum (e. prompts) má benda á þetta tölublað okkar Fjalars.Námsefni aðgengilegt fyrir alla
Hin raunverulega bylting fyrir mig sem kennara felst samt ekki í samtalinu við gögnin, þótt það sé vissulega gagnlegt. Hún liggur frekar í því hversu ótrúlega auðvelt er að miðla efni til nemenda og uppfylla þarfir mjög ólíkra hópa. Með því að deila vinnubókinni fær hver nemandi með aðgang að þessum heimi, án þess að geta breytt þeim gögnum sem kennarinn hefur sett inn. NotebookLM aðgengilegt notendum 13 ára og eldri og er því nothæft bæði í grunn- og framhaldsskólum. Til að fá ókeypis aðgang þarf einungis að skrá sig fyrir Google aðgangi. NotebookLM er einnig hluti af Google Classroom.Sjálfvirk gerð námsefnis með einum smelli
NotebookLM býður upp á öfluga „eins-smells“ virkni þar sem gervigreindin býr til fjölbreytt efni úr þeim heimildum sem kennarinn velur:Krossapróf: Býr til krossapróf. Hægt er að ákvarða fjölda spurninga og erfiðleikastig. Prófin sýna ekki aðeins rétt svör, heldur gefa þau vísbendingar og opna spjallglugga með ítarlegum útskýringum ef nemandinn vill það.
„Glósukort“ (e. Flashcards): Einföld og áhrifarík leið til að hjálpa nemendum að læra lykilhugtök.
Algengar spurningar (e. FAQ): Býr til skjal með mikilvægum spurningum úr efninu og skýrum svörum við þeim.
Útskýringarmyndskeið: Smíðar stutt myndbönd með glærum og tali sem útskýra valdar heimildir eða afmarkað efni á aðgengilegan hátt.
Hljóðútskýringar: Fer yfir mikið efni og býr til gott útskýringar hljóðvarp sem nemendur geta hlustað á.
Efni á ólíkum tungumálum á augabragði
Það sem gerir ofangreinda þætti enn magnaðri er að með örfáum músasmellum er hægt að láta kerfið útbúa allt þetta efni á fjölda mismunandi tungumála. Þetta gerir mér sem kennara mögulegt að bjóða upp á krossapróf, kennslumyndskeið og annað námsefni á þeim tungumálum sem nemendur í hópnum þurfa á að halda. Nemendur geta einnig sjálfir stillt tungumálið á spjallsvæðinu. Smelltu hér til að fá aðgang að áfanga í vefforritun þar sem ég nýti NotebookLM í kennslunni einmitt á þennan hátt.
Hjörvar Ingi
Gervigreind sem bandamaður en ekki baggi
NotebookLM er áhugaverður vísir í átt að framtíð þar sem gervigreind er samofin kennslustarfinu á uppbyggilegan hátt. Kennarar geta nú boðið nemendum upp á gervigreindarstutt lærdómsumhverfi sem er bæði öruggt og skilvirkt. Kennarinn hefur fulla stjórn á innihaldinu en nýtir krafta gervigreindarinnar til að sérsníða námið, miðla efni, auka aðgengi og spara dýrmætan tíma sem hægt er að nýta í beinum samskiptum við nemendur.
Til viðbótar við allt þetta þá er NotebookLM mjög handhægt verkfæri í símenntun kennara.
S.Fjalar og Hjörvar Ingi





