Notebook LM, tölvur sem tala og örfá orð um áskriftir
Skólastarf á hraða tækninnar
Hér er komið annað tölublaðið af fræðsluritinu Skólastarf á hraða tækninnar. Í þettað skiptið leggjum við áherslu á Gemini gervigreindina frá Google og skoðum sérstaklega NotebookLM verkfærið og einnig hvernig hægt er að eiga samskipti við Gemini með því að tala við hana.
S. Fjalar og Hjörvar Ingi
NotebookLM
Hefur þú einhvern tímann óskað þér persónulegs aðstoðarmanns sem getur unnið með öll gögnin þín, texta, myndbönd, vefsíður og hjálpað þér að finna nýjar hugmyndir? Einhvers sem getur sett saman kennsluáætlun, spáð fyrir um spurningar nemenda og jafnvel búið til ritgerðarspurningar? Og hvað ef þessi aðstoðarmaður gæti útskýrt flókið námsefni á einfaldan og aðgengilegan hátt, svo nemendur skilji betur? Þetta hljómar kannski eins og draumur en ég tel að þetta sé orðinn raunveruleiki og það besta er að þetta er ókeypis. Ég er að tala um NotebookLM frá Google, persónulegt vinnusvæði sem hjálpar þér að vinna með námsefni á alveg nýjan og skapandi hátt.
Ekki hefðbundin gagnageymsla
Ólíkt hefðbundnum gagnageymslum eins og Google Drive, notar þetta kerfi „minnisbækur“, stafræn vinnusvæði fyrir verkefni eða kennslugreinar. Þú ákveður sjálf(ur) hvernig þú skipuleggur minnisbækurnar. Þú getur hlaðið inn fjölbreyttu efni (texta, PDF, Google skjölum, vefsíðum, YouTube myndböndum) og spjallað síðan við gervigreind sem þekkir gögnin þín og aðstoðar þig. Kerfið hentar einnig vel fyrir hópavinnu þar sem margir geta unnið saman í sömu minnisbókinni með stuðningi gervigreindar.
Sýnidæmi
Tökum dæmi um Maríu og Jón, sögukennara sem eru að undirbúa kennslu um Íslendingasögurnar og samfélag Íslands á söguöld. María byrjar á því að búa til nýja minnisbók í NotebookLM fyrir áfangann, nefnir hana „Söguöldin“, og deilir henni strax með Jóni svo þau geti unnið saman frá fyrsta degi.
Eftir það fara þau að hlaða inn öllu námsefninum, sögubókum, fræðigreinum, textum og jafnvel afritum af YouTube myndböndum, inn í sitt sameiginlega vinnusvæði í NotebookLM.
Þegar efninu hefur verið safnað saman, byrja María og Jón að spyrja gervigreindina spurninga. Jón spyr til dæmis: „Hvaða misskilning um heiðni á söguöld mætti helst koma í veg fyrir?“ Gervigreindin svarar með yfirliti úr fræðigreinunum sem þau hlóðu inn. María biður svo um drög að kennsluáætlun fyrir tveggja vikna lotu, en hún vill ekki að YouTube myndbandið verður tekið með þar, svo hún afskráir það svo gevrigreindin notist ekki við það.
Til að fá betri yfirsýn og skipuleggja hugmyndir sínar geta þau vistað mikilvæg svör og valdar tilvitnanir yfir í sérstakt glósusvæði hægra megin á skjánum.
Þau nýta gervigreindina líka til að búa til stutt hljóðyfirlit (e. audio overview) í hlaðvarps formi sem útskýra flókin atriði á einfaldan hátt fyrir nemendur sem eiga erfitt með texta. Jón biður jafnvel um slíka hljóðskýringu á spænsku, því einn nemandinn hans er nýfluttur til landsins. Þau setja svo þessi hljóðbrot inn í kennslukerfið sem þau nota eða deila þeim jafnvel á Spotify eða álíka þjónustum, sem gerir námsefnið aðgengilegt fyrir sem flesta.
María og Jón fá einnig aðstoð við að útbúa orðalista yfir lykilhugtök, tímalínur yfir helstu atburði og jafnvel spurningar fyrir skyndipróf ásamt ýmsu fleiru. Þetta sparar þeim ekki aðeins gríðarlegan tíma heldur gerir þeim kleift að búa til fjölbreyttara og betra námsefni.
Svona sjáið þið smá sýnidæmi um hvað er hægt að gera og hvernig er hægt að nýta þetta, hvort sem maður er einn á ferð eða í hóp.
Prófið sjálf
Besta leiðin til að sjá hvort að þetta henti ykkur er að prófa og endilega kíkja á YouTube til að skoða hvernig er hægt að nota NotebookLM, með því að skrifa lýsingu eins og Notebook LM tutorial í leitarstikuna á YouTube síðunni. Ég hef heyrt að sumir fá villu að þeir hafi ekki aðgang að þessari þjónustu þegar þeir reyna að opna Notebook LM, ég hafði samband við þá sem sjá um þetta kerfi og fékk þau svör að þetta virkar bara með einka Gmail, ekki sem buið er til fyrir vinnu (eins og @gskolar.is) og líka að passa að það sé búið að staðfesta aldur á notandanum þar sem þessi áskrift er bönnuð þeim sem eru yngri en 18 ára. Hvernig sérð þú fyrir þér að þú gætir nýtt þér NotebookLM í þínu starfi? Ég hlakka til að heyra hugmyndir þínar í athugasemdum!
Hjörvar Ingi
Þegar tæknin tekur til máls
Ég hef ekki rannsakað það neitt sérstaklega en er ekki augljóst að lyklaborðið er enn þá allsráðandi þegar kemur að tölvunotkun og skiptir þá varla máli hvort þú skrifar tölvupóst, vinnur skýrslu eða átt samtal við snjallmenni á netinu. Þessi hefðbundni samskiptamáti er einfaldur og skilvirkur og hefur því verið ríkjandi í áratugi. En myndin er að breytast hratt. Framfarir í máltækni hafa á tiltölulega stuttum tíma gjörbylt samskiptum manns og tölvu og nú blasir við sú staða að lyklaborðið gæti innan skamms misst þessa sérstöðu sína.
Spjallað við gervigreindina
Ég tala mikið við gervigreindina, sérstaklega Gemini. Ég nota til þess Gemini appið í símanum mínum og ég hef símann (Samsung S24) þannig stilltan að hann læsist ekki þegar ég er heima eða í bílnum. Þannig get ég ávarpað hann við akstur og spjallað um allt milli himins og jarðar og ef Gemini þarf að kalla á önnur öpp eftir upplýsingum, s.s. tölvupóstinn, þá þarf ég ekki að aflæsa símanum. Þetta virkar mjög vel, en það er samt eitt vandamál. Gemini styður ekki við íslensku, þ.e. íslenska er ekki í listanum af tungumálum sem hægt er að velja í stillingunum. Gemini getur samt skilið íslensku og talað. Þetta er dálítið ruglingslegt ég veit. Ef ég hef samtal við Gemini appið á íslensku þá skilur hún mig ekki, en ef ég bið hana á ensku um að tala á íslensku þá getur hún það. Ég tala því ensku við appið til að forðast vandamál.
Gemini live
Fyrir ekki svo löngu kynnti Google til sögunnar nýjan eiginleika í Gemini appinu, nefnilega rauntíma-sýn með milligöngu myndavélarinnar. Það er svo sem ekkert nýtt að sýna gervigreind ljósmyndir meðfram spjalli en þetta er allt annað og meira. Ég er þeirrar skoðunar að þessi eiginleiki muni hafa afgerandi áhrif á nám og kennslu. Ég mun í það minnsta kenna mínum nemendum á Starfsbraut FB að nýta sér þessa tækni strax á næstu haustönn. Fyrir mörg þeirra mun það skipta sköpum. Hér virkar íslenskan líka miklu betur.
Til að vera alveg viss þá fletti ég upp nöfnunum á plöntunum sem Gemini greindi fyrir mig. Það er vitað mál að við getum ekki tekið öllu sem sjálfsögðum hlut þegar gervigreind er annars vegar.
Enska (ætti ég frekar að segja latneska?) heitið á fyrri plöntunni er Rhodiola rosea sem er alveg hárrétt samkvæmt mínum heimildum. Gemini þýddi það sem Rósarót á íslensku sem er vissulega til en plantan er miklu þekktari undir nafninu Burnirót. Seinna blómið er Ajuga reptans en á íslensku nefnist það Dvergavör en ekki Skriðfjóla. Ég finn hvergi stakt orð um plöntu sem heitir Skriðfjóla! Er ekki annars magnað hvað gervigreindin getur skáldað á sannfærandi hátt?
S.Fjalar
Gemini: Er greidd áskrift þess virði?
Eins og þið hafið lesið er gervigreind Google svo miklu meira en bara spjallmenni. Í boði er fjölbreytt og öflugt vistkerfi af verkfærum.
Með ókeypis aðganginum getur þú átt samskipti við Gemini spjallmennið og nýtt þér NotebookLM við margvíslega verkefnavinnu. Svo fátt eitt sér nefnt. Það er vel þess virði að prófa og sjá hvort þessi verkfæri komi þér að gagni.
Ef þetta heillar þig að þá gæti verið ástæða að skoða áskrift. Hún kostar, þegar þetta er skrifað, tæpar 19 evrur og inniheldur m.a.:
Öflugasta gervigreindarlíkanið þeirra: Þú færð aðgang að Gemini 2.5 Pro, sem er færara í flóknum verkefnum og býður upp á eiginleika eins og „Deep Research“.
Samþætting við Google forritin: Gemini birtist sem hjálpartæki sem er samþætt Gmail, Docs, Sheets og fleiri forritum sem þú notar daglega.
Stóraukinn aðgangur í NotebookLM: Þú getur búið til fleiri „minnisbækur“ (notebooks), bætt við mun fleiri heimildum í hverja og útbúið fleiri hljóðsamantektir (podcasts).
Aðgangur að myndbandsgerð: Þú færð aðgang að Veo2 til að búa til myndbönd, fólk er byrjað að fá smá aðgang að Veo3 í gegnum keypta áskrift, en það er ekki komið fyrir íslenska notendur.
2 TB geymslupláss: Áskriftinni fylgja 2 terabæti af geymsluplássi í Google One, sem nýtist fyrir Drive, Photos og Gmail.
Þannig að ef þér líkar vel við það sem ókeypis aðgangurinn hefur upp á að bjóða og ert forvitin/n um að taka næsta skref, þá er klárlega þess virði að skoða að kaupa áskrift hérna: Get more out of Gemini
Af eigin reynslu get ég heilshugar mælt með Gemini áskriftinni fyrir alla sem er á höttunum eftir öflugu og fjölhæfu gervigreindarverkfæri til daglegrar notkunar. Eins og ég hef áður rakið fylgja henni margir kostir sem tengjast vistkerfi Google, en það er samt annar þáttur sem skiptir mig máli.
Stærsti kosturinn að mínu mati og sá þáttur sem varð til þess að ég skipti yfir í Gemini eru takmarkanir á notkun eða öllu heldur skorturinn á þeim. Í áskriftarleið ChatGPT rekst ég reglulega á notkunarþak, t.d. á öflugasta líkaninu og á deep research. Ég var t.d. að fá skilaboð núna um að aðgangi mínum að Deep research væri tímabundið lokað og opnaðist ekki fyrr en eftir x marga daga. Þetta er mjög hamlandi fyrir mig. Ég nota reyndar þjónustuna mjög mikið og kannskei ekkert líklegt að notendur lendi almennt í þessu. En með Gemini AI pro áskriftinni hef ég enn ekki þurft að glíma við álíka takmarkanir þrátt fyrir mikla notkun. Fyrir vikið er Gemini orðið mitt aðalverkfæri í nánast öllu nema þegar ég þarf að hanna sérsmíðaða botta.
Við fjöllum svo meira um fyrirbærið „bottar“ í næsta tölublaði.
Hjörvar Ingi





